Fimm þjónustusvið sem ná yfir allt frá fyrstu innskráningu nýs starfsmanns til mánaðarlegrar öryggisskýrslu.
Daglegur rekstur
Tölvumálin í föstum farvegi, svo starfsfólkið geti einbeitt sér að vinnunni.
Notendaþjónusta þar sem hver beiðni er skráð, rakin og kláruð.
Sjálfvirkar uppfærslur á stýrikerfi og forritum á öllum tækjum.
Nýir starfsmenn og starfslok: aðgangur tilbúinn á fyrsta degi og lokað samdægurs þegar þið látið vita.
Öryggi
Sjálfvirk vöktun allan sólarhringinn og skýr viðbrögð á opnunartíma þjónustuvers.
Vöktun á grunsamlegum innskráningum, svikapóstum og veikleikum.
Varnir: tvíþátta auðkenning, vírusvörn og fræðsla fyrir starfsfólk.
Afritun með endurheimt sem er prófuð, ekki bara gert ráð fyrir.
Ský og samvinna
Microsoft 365 og Google Workspace, sett upp rétt og haldið í lagi.
Umsjón með notendum, leyfum, pósti og samvinnutólum.
Aðgangsstýring og öryggisstillingar byggðar á viðurkenndum öryggisviðmiðum.
Flutningur milli kerfa án þess að vinnudagurinn stöðvist.
Net og búnaður
Traustur grunnur undir allt hitt.
Netkerfi: eldveggir, þráðlaust net og örugg fjartenging.
Tækjakaup og uppsetning, tilbúið til notkunar við afhendingu.
Vefhýsing, lén og póststillingar í lagi.
Yfirsýn
Þið vitið alltaf hvar þið standið og hvað er fram undan.
Skjölun á kerfum, tækjum og verklagi, sem er ykkar eign.
Mánaðarlegt yfirlit á mannamáli.
Ráðgjöf og áætlun um endurnýjun, í stað óvæntra útgjalda.
Öryggi í verki
Vörn sem gerir meira en að vara við.
Þetta er hluti af öllum pökkum og keyrir hjá okkur sjálfum á hverjum degi.
Við sjáum ef pósthólf er yfirtekið
Óvenjulegar innskráningar, nýjar reglur í pósthólfi og breyttar heimildir eru greindar strax, áður en svikapóstur fer út í ykkar nafni.
Pósturinn fer ekki út á bak við ykkur
Lokað er á sjálfvirka áframsendingu pósts út fyrir fyrirtækið, svo sá sem kemst inn getur ekki látið senda sér afrit af öllu.
Við vöktum líka vöktunina
Ef tölva eða kerfi hættir að senda gögn fáum við að vita það. Vikuleg prufa staðfestir að viðvaranir berist alla leið.
Gögnin geymd í Evrópu
Vöktunargögnin eru geymd í evrópsku gagnaveri og afritin dulkóðuð innan Evrópusambandsins.
Pakkar
Stærðin ræðst af fjölda ykkar.
Eitt fast mánaðarverð fyrir vöktun, uppfærslur og aðstoð, og aldrei aukareikningur fyrir vinnu á þjónustutíma.
Hreiður
1–4 notendur
Fyrir einyrkja og minnstu teymin
Skjól
5–10 notendur
Fyrir litlar skrifstofur
Vernd
11–25 notendur
Fyrir fyrirtæki í vexti
Virki
26–40 notendur
Fyrir stærri rekstur
Fleiri en 40? Velkomin, við finnum lausn saman.
Innifalið í öllum pökkum: sjálfvirk vöktun allan sólarhringinn, uppfærslur á öllum tölvum, skjölun, mánaðarskýrsla á mannamáli og umsjón með Microsoft 365 leyfunum. Innleiðingin er frí.
Vörnin ykkar
Í öllum pökkum
Fullbúin vörn: Microsoft 365 Business Premium
Stöðvar svikapóst, ver tölvurnar, heldur utan um tækin og tryggir örugga innskráningu. Allt í einu leyfi.
Viðbót fyrir skrifstofuna
Hlið: skrifstofan líka varin
Eldveggurinn vaktaður, lokað á innbrotstilraunir og netbúnaðurinn alltaf uppfærður. Fast verð á stað.
Svona byrjum við
Þrjú skref frá fyrsta samtali að daglegum rekstri.
Tilboð
Segið okkur hvað þið eruð mörg og við sendum ykkur tilboð. Þið ákveðið svo í rólegheitum.
Frí innleiðing
Um leið og samið er förum við yfir hvert tæki, hvern aðgang og hvert leyfi og lokum götunum: uppfærslur, tvíþátta auðkenning og rétt aðgangsstýring. Ykkur að kostnaðarlausu.
Rekstur
Sjálfvirk vöktun allan sólarhringinn, þjónustuver virka daga 08–16 og yfirlit um stöðuna í hverjum mánuði.
Hjá Skýtækni þurfið þið ekki að útskýra málið fyrir nýjum aðila í hvert skipti. Þið talið við fastan tengilið sem þekkir kerfið ykkar, söguna á bak við það og fólkið sem notar það.
Allt sem gert er fer í skjölun og mánaðarlegt yfirlit. Þekkingin á kerfinu ykkar er því skráð og aðgengileg ykkur, en ekki bundin við minni einhvers eins.
Það sem þið getið gengið að vísu
Hver beiðni er skráð
Ekkert týnist í tölvupósti eða símtölum. Þið sjáið alltaf hvað var beðið um og hvað var gert.
Tvíþátta auðkenning alls staðar
Á ykkar aðgöngum og okkar. Lykilorð eitt og sér opnar ekkert.
Lágmarksaðgangur
Við höfum aðeins þann aðgang sem verkið krefst, og hann er skráður.
Allt er ykkar
Búnaðurinn, aðgangarnir og skjölunin eru ykkar eign. Þið getið tekið allt með ykkur hvenær sem er.
Hafa samband
Fáið tilboð.
Segið okkur hvað þið eruð mörg og við sendum ykkur tilboð. Innleiðingin er frí: við förum yfir allt og gerum það skothelt.