Skýtækni

Persónuverndarstefna

Síðast uppfært 24. október 2026

Hver ber ábyrgð

Skýtækni er rekið af Physio BO slf., kt. 650124-0650, Naustabryggju 25, 110 Reykjavík, sem er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem safnað er á skytaekni.is. Spurningar um persónuvernd sendir þú á personuvernd@skytaekni.is.

Hvaða upplýsingum við söfnum

Þegar þú sendir fyrirspurn á vefnum fáum við það sem þú skrifar: nafn, fyrirtæki, netfang og skilaboð. Sama á við þegar þú sendir okkur tölvupóst.

Á vefnum eru engar vafrakökur. Við mælum umferð með mælingu sem telur heimsóknir án vafrakaka og án þess að rekja einstaka gesti.

Til hvers

Við notum upplýsingarnar til að svara fyrirspurninni og gera tilboð ef þú óskar eftir því. Við sendum þér ekki markpóst nema þú biðjir um það, og við seljum aldrei upplýsingar.

Vinnslan byggir á því að þú hefur sjálf eða sjálfur óskað eftir samskiptum eða tilboði, sem er undanfari mögulegs samnings (b-liður 1. mgr. 6. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar).

Hverjir vinna með upplýsingarnar fyrir okkur

Við notum traustar þjónustur til að reka vefinn og sinna fyrirspurnum. Þær vinna aðeins með upplýsingarnar samkvæmt okkar fyrirmælum og samkvæmt vinnslusamningi:

Sumir þessara aðila eru með starfsemi utan Evrópska efnahagssvæðisins. Þegar upplýsingar fara þangað byggir flutningurinn á viðurkenndum verndarráðstöfunum, svo sem stöðluðum samningsskilmálum framkvæmdastjórnar ESB.

Hversu lengi

Fyrirspurnir geymum við eins lengi og samskiptin standa yfir. Verði ekki af viðskiptum eyðum við þeim innan 12 mánaða. Gerist þú viðskiptavinur gilda ákvæði þjónustu- og vinnslusamnings.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá að vita hvaða upplýsingar við höfum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, og að andmæla vinnslu. Sendu beiðni á personuvernd@skytaekni.is og við svörum innan mánaðar.

Þú getur líka kvartað til Persónuverndar á personuvernd.is.

Breytingar

Ef við breytum stefnunni birtum við nýja útgáfu hér með nýrri dagsetningu.

Til baka á forsíðu